Jákvæður agi er uppeldisstefna byggð á sjálfsstjórnarkenningum.
Höfundar: Alfred Adler, Rudolf Dreikurs, William Glasser, Jane Nelsen o.fl.
Það sem stýrir hegðun:
• Fólk er knúið áfram af innri þörfum – að tilheyra.
Við höfum mest áhrif:
• þegar við höfum samskipti sem byggjast á gagnkvæmri virðingu.
Áhrifamestu verkfærin eru:
• samhygð, skilningur, þrautalausnir, góðvild og festa.
Virðing er:
• gagnkvæm, í samskiptum eiga allir aðilar skilið virðingu.
Viðbrögð við óæskilegri hegðun:
• Að leita orsaka, finna lausnir og fylgja ákvörðunum eftir.
Viðbrögð við hættulegri hegðun:
• Skýr eftirfylgd og rökréttar afleiðingar.
Nám fer fram þegar:
• barn upplifir tilgang, sjálfsstjórn, þátttöku.