Aðalæfingu lokið

Dansinn dunar í Hlíðarbæ.
Dansinn dunar í Hlíðarbæ.

Árshátíð nemenda 1.-6. bekkjar byrjar kl. 16 í Hlíðarbæ í dag. Þar er hver námshópur með leikið atriði og einnig dansatriði undir stjórn Ingu Möggu danskennara. Nokkrir nemendur spila einnig á hljóðfæri sín. 

Í morgun var aðalæfing árshátíðarinnar og af myndunum sem voru teknar þá má sjá að allir geta látið sig hlakka til hátíðarinnar. Ef þú smellir hérna getur þú skoðað myndirnar sem voru teknar í morgun.