Árshátíð

Árshátíð Þelamerkurskóla verður haldin í íþróttahúsinu á Þelamörk fimmtudagskvöldið 5. febrúar og hefst skemmtunin stundvíslega kl. 20.00. Boðið verður upp á Ýmis skemmtiatriði, tónlistarflutning og kaffiveitingar.

Allir velunnarar skólans eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Aðgangseyrir er 1200 krónur fyrir 12 ára og eldri og 700 krónur fyrir 7—12  ára. 

Nemendur skólans fá frítt inn á árshátíðina.

 Kaffihlaðborð fyrir fullorðna: 1300 krónur.

 Kaffihlaðborð fyrir börn á grunnskólaaldri: 500 krónur.

 Dúddabúð verður auðvitað opin

 Verið hjartanlega velkomin,

 Nemendur og starfsfólk Þelamerkurskóla