Árshátíðardagurinn og víða hált

Bíllinn niðri á Skottinu (Klængur) fer ekki af stað samkvæmt áætlun. Þar er flughált og mikill vindur. Eftir kl. 8:00 vitum við hvort Vegagerðin mun sanda veginn í dag eða hvort við þurfum að gera einhverjar aðrar ráðstafanir. Sá skólabíll fer alla vega ekki af stað fyrr en eftir kl. 9:30 Foreldrar eru beðnir um að fylgjast með tilkynningum hér heimasíðunni.

Bílinn í Hörgárdalnum (Valur) fer af stað samkvæmt áætlun en fólksbíll mun sækja nemendur á Staðarbakka og í Lönguhlíð. Aðrir bílar (Jón Þór, Magnús og Sigurður) fara af stað samkvæmt áætlun en vegna hálkunnar og roksins fara þeir hægar yfir en venjulega svo foreldrar eru beðnir um að fylgjast með ferðum bílanna.