Baráttudagur gegn einelti

Stöndum saman gegn einelti
Stöndum saman gegn einelti

Verkefnastjórn um aðgerðir gegn einelti hefur ákveðið að helga  8. nóvember ár hvert baráttunni gegn einelti.  Slíkur baráttudagur var fyrst haldinn árið 2011 og  markmiðið með deginum er og var  að vekja sérstaka athygli  á málefninu. Undirritun fulltrúa félaga, samtaka og opinberra stofnana á þjóðarsáttmála gegn einelti var þar einn liður. Sáttmálinn er einnig grunnur að frekari vinnu, við hann má bæta og miða í þeim efnum við þarfir þeirra fjölmörgu félaga, samtaka og stofnanna er undirrituð sáttmálann í Höfða í fyrra. Sáttmálan má því  útfæra enn frekar með undirmarkmiðum og fjölbreyttum verkefnum.

Mörg verkefni sem tengjast baráttudeginum eiga sér langan aðdraganda, eru ólík  en eiga það öll sammerkt að vera liður í að efla jákvæð samskipti í samfélaginu.  Markmiðið með baráttudeginum er því ekki það að efna til sérstakrar flugeldasýningar á þessum tiltekna degi, dagurinn er fremur tilefni til þess að gefa gaum og benda á margt það sem vel er gert í þessum efnum. Baráttudagurinn er því ekki síður dagur til þessa að  líta yfir farin veg, þétta raðirnar, ákveða næstu skerf og bretta upp ermarnar hver í sínum mikilvæga ranni.

Verkefnastjórnin hvetur alla þá fjölmörgu aðila og samtök, sem starfa á þeim vettvangi sem átakið nær til, til þess að taka höndum saman og helga 8. nóvember ár hvert baráttunni gegn einelti.  Sérstaklega er þessu beint til leikskóla, grunn- og framhaldsskóla, félags- og frístundamiðstöðva, auk vinnustaða og stofnana. Ýmislegt er að hægt að gera á þessum baráttudegi, s.s. með táknrænum viðburðum eða viðfangsefnum sem hafa það að markmiði að beina umræðunni að einelti og alvarlegum  afleiðingum þess í samfélaginu og ekki síst mikilvægi jákvæðra og uppbyggilegra samskipta. (http://www.gegneinelti.is/dagur-gegn-einelti/dagurinn/)

Í tilefni dagsins ætla nemendur og starfsfólk skólans að koma saman niðri í íþróttahúsi kl. 13.00. Við ætlum að dansa vinaliðadansinn og fara í nokkra leiki sem verða í umsjón vinaliða skólans. Hér má sjá myndir frá þessum degi.