Frá skólahjúkrunarfræðingi

Samningur um gjaldfrjálsar tannlækningar barna tók gildi 15. maí 2013. Hér er bréf frá Sjúkratryggingum Íslands sem foreldrar eru beðnir um að kynna sér vel. Á hverju ári koma upp lúsafaraldrar sem eru einmitt algengir á haustin þegar skólarnir byrja. Foreldrar eru beðnir um að vera vel vakandi gagnvart þessum óvelkomna gesti.