Háskólalestin og Háskóli unga fólksins

Föstudaginn 30.maí sækja nemendur í efstu bekkjum grunnskóla Dalvíkur, Árskógaskóla og Þelamerkuskóla námskeið í Háskóla unga fólksins í efnafræði, eðlisfræði, japönsku, stjörnufræði, næringarfræði, hugmyndasögu, Legó forritun, jarðfræði og vísindaheimspeki.

Laugardaginn 31. maí verður síðan slegið upp veglegri vísindaveislu í Bergi kl. 12 til 16 og þangað er öllum heimamönnum boðið. Þar verða meðal annars magnaðar sýnitilraunir, japanskir búningar og skrautskrift, leikir og þrautir, ýmis tæki og tól, furðuspeglar, mælingar og alls kyns óvæntar uppgötvanir.  Opið verður í  Byggðasafnið og ókeypis aðgangur, fyrirtæki í heimabyggð kynna starfsemi sína og heilmargt annað verður í boði fyrir gesti og gangandi.

Sprengjugengið landsfræga er með í för og sýnir kl. 12.30 og 14.30 og sýningar verða í hinu sívinsæla stjörnutjaldi á 30 mínútna fresti. Tjaldið verður staðsett í grunnskólanum.

Dagskrá Háskólalestarinnar er öllum opin, aðgangur ókeypis  og allir hjartanlega velkomnir.

Hægt er að fylgjast með Háskólalestinni á vef hennar og á Facebook