Heimferð í dag

Veðrið er enn slæmt á skólasvæði Þelamerkurskóla. Við bíðum eftir upplýsingum um færð frá Vegagerðinni. Börnin verða ekki send heim fyrr en við vitum að veðrið er orðið skaplegt og færðin þannig að skólabílarnir geta komið þeim heim. Hvort það verður þegar heimferð er áætluð vitum við ekki enn. Látum vita af því þegar við vitum meira.