Heimferð nem. þriðjudaginn 22. nóv.

Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum undanfarið standa grunnskólakennarar í kjarabaráttu. Á morgun, þriðjudaginn 22. nóvember kl. 13:30 hefur hópur innan stéttarinnar hvatt félaga sína til vinnustöðvunar. Kennarar Þelamerkurskóla hafa ákveðið að taka þeirri áskorun. Þess vegna verður heimferð nemenda flýtt á morgun og fara rúturnar frá skólanum kl. 13:30.