Íþróttatímar Smárans

Íþróttatímar Smárans byrja mánudaginn 7. september. Æfingarnar verða strax eftir skóla í íþróttahúsinu á Þelamörk og standa til kl.15.50

Fimleikar verða á mánudögum næstu 6 vikurnar (til 12/10), þá tökum við stöðuna og sjáum til hvort við höldum áfram eða breytum yfir í badminton/bandý. Þjálfari; Inga Matthíasdóttir.

Fótbolti verður á fimmtudögum. Þjálfari; Þórólfur Sveinsson.

Minnum ykkur svo á heimasíðu Smárans smarinn.umse.is og facebook síðuna en þar eru ýmsar upplýsingar um starfsemi ungmennafélagsins og fréttir því tengdu, auk þess sem við setjum þar inn tilkynningar til iðkenda.

Bestu kveðjur, íþróttanefnd Smárans