Nökkvi á Ósi fyrstur í mark

Nökkvi á Ósi í 1. bekk kom fyrstur í mark
Nökkvi á Ósi í 1. bekk kom fyrstur í mark

1. maí hlaup UFA fór fram í gær og liðlega helmingur nemenda skólans hljóp annað hvort 2 eða 5 km. Fyrir þá þátttöku lenti skólinn í öðru sæti í keppni fámennra skóla um hlutfallslega mætingu skólanna. Nokkrir foreldrar slógust líka í för með hlaupurum. 

Allir lögðu sig fram í hlaupinu og náðu góðum árangri. Nökkvi Hjörvarson var til dæmis fyrstur í mark af nemendum 1. og 2. bekkjar sem hlupu 2 km. Strákarnir í 7. og 8. bekk höfðu flestir einsett sér að hlaupa 5 km á innan við 30 mínútum og því náðu þeir allflestir. 

Hér er hægt að skoða myndir sem teknar voru í hlaupinu í gær. 

Smelltu svo hér til að sjá á hvaða tíma nemendur hlupu. Og hér til að skoða frétt á heimasíðu UFA um hlaupið.