Myndir í Skólavörðunni

Nokkrum sinnum á ári gefur Kennarasamband Íslands út tímarit um málefni sambandsins. Fyrir nokkru kom ljósmyndari á vegum blaðsins í Þelamerkurskóla til að safna myndum í sarp blaðsins. Forsíðu nýjasta tölublaðsins prýðir mynd úr Þelamerkurskóla. Myndin er af Alexi Jóni Þrastarsyni nemanda úr 1. bekk. Inni í blaðinu eru einnig myndir úr skólanum. 

Ef þú smellir hérna þá getur skoðað blaðið í heild sinni.