- Fréttir
- Skólinn
- Nemendur
- Sérstaða
- Þróunarverkefni
- Samstarf
- - Fótur: Tilkynningar
Stuðningsfulltrúi við Þelamerkurskóla 80% starf
Þelamerkurskóli óskar eftir barngóðri og metnaðarfullri manneskju í tímabundið 80% starf út skólaárið með möguleika á áframhaldandi starfi næsta skólaár. Starfið felur í sér að hafa umsjón með og styðja við nemendur náms- og félagslega. Stuðningsfulltrúi vinnur í nánu samstarfi við kennara og stoðteymi. Í Þelamerkurskóla eru 100 nemendur. Starfið krefst sveigjanleika og virkrar þátttöku í fjölbreyttu skóla- og frístundastarfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Aðstoða nemendur í leik og starfi og leiðbeina þeim í umgengni og samskiptum.
Stuðla að velferð nemenda í góðu samstarfi við starfsfólk skólans.
Sinna gæslu hvar og hvenær sem þörf er á.
Taka þátt í því uppeldisstarfi sem fram fer innan skólans í anda stefnunnar um jákvæðan aga.
Menntunar- og hæfniskröfur
Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.
Mikil áhersla er á lipurð og færni í samskiptum við börn og fullorðna.
Stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Sveigjanleiki og jákvæðni.
Íslenskukunnátta nauðsynleg.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er t.o.m. 28. janúar 2025. Ferilskrá og umsókn skal senda á netfang skólastjóra annarosa@thelamork.is sem veitir jafnframt frekari upplýsingar um starfið. Laun eru greidd skv. kjarasamningum Einingar/Iðju og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Upplýsingar um Þelamerkurskóla er að finna á heimasíðu skólans, https://www.thelamork.is