- Fréttir
- Skólinn
- Nemendur
- Sérstaða
- Þróunarverkefni
- Samstarf
- - Fótur: Tilkynningar
Eins og hefð er fyrir verður öskudagsgleði Þelamerkurskóla á sprengidaginn sem er þriðjudaginn 9. febrúar nk. Nemendur geta komið strax um morguninn í búningum sínum og máluð, en fram að hádegi er kennt samkvæmt stundaskrá. Það verður ekki sund þennan dag. Hádegismatur verður frá kl. 12.00 12.30 og frá 12.30 13.00 undirbúa nemendur sig fyrir öskudagsballið. Þeir sem þurfa aðstoð við málun fá hana í stofu 3. Öskudagsskemmtunin hefst á sal kl. 13.00.
Dagskrá hennar er:
Kötturinn sleginn úr tunnunni.
Tunnukóngur/drottning krýnd/ur með viðhöfn
Söngvakeppni öskudagsliða
Marsering undir stjórn elsta námshópsins skólavinir marsera saman
Öskudagsball þar sem allir taka þátt
Á öskudagsskemmtuninni þurfa allir að vera í búningum og það telst ekki búningur að setja á sig derhúfu eða svitaband. Foreldrar í búningum eru velkomnir á skemmtunina.
Rútur fara heim á venjulegum tíma eða kl. 14.20.
Eins og við öll vitum þá er tíminn fyrir öskudag er oftast hlaðinn tilhlökkun hjá börnunum. En hjá sumum er hann líka hlaðinn ákveðinni spennu sem myndast við skipan í öskudagslið. Við viljum biðja foreldra um að aðstoða börn sín við að setja saman liðin með því að ráðfæra sig hver við annan svo að allir sem þess óska komist glaðir í öskudagslið.