Samkeppni um nýtt merki

Allir geta tekið þátt
Allir geta tekið þátt

Í ár á Þelamerkurskóli 50 ára starfsafmæli. Af því tilefni er efnt til samkeppni um nýtt merki (lógó) fyrir skólann.

Nýja merkið þarf að vera lýsandi fyrir áherslur og staðsetningu skólans. Einnig þarf að vera auðvelt að koma einkunnarorðum skólans, þroski, menntun, samkennd hjá merkinu eða í því. Hið sama gildir um afmælistöluna, 50. Samkeppnin er öllum opin. 

Þeir sem vilja senda inn tillögu að merkinu geta sent það í löturpósti á heimilsfang skólans, Þelamerkurskóli, Laugalandi, 601 Akureyri eða á netfang hans thelamork@thelamork.is. Skilafrestur er til og með 27. september n.k. 

Sérstök dómnefnd verður skipuð úr hópi starfsmanna og nemenda. Allar tillögurnar verða svo settar upp á afmælisfögnuði skólans 20. nóvember n.k.