Skíðadagur í Hlíðarfjalli

Áætlað er að vera með útivistardag vorannar miðvikudaginn 26. mars. Þessi dagur er skipulagður sem langur dagur. Nemendur mæta í skólann á venjulegum tíma og verða í skólanum fram að hádegi. Lagt verður af stað upp í Hlíðarfjall kl. 11.30 og verða nemendur í fjallinu fram að heimferð sem er kl. 15.30Hægt er að velja um að fara á skíði / bretti / gönguskíði /  eða bara vera á tveimur jafnfljótum. Þeir nemendur sem ætla að vera eftir í fjallinu þurfa að koma með miða um það að heiman.

Foreldrar athugið: Þeir nemendur sem þurfa að leigja sér skíði eða bretti eiga sjálfir að greiða fyrir leiguna, en ekki lyftugjald í fjallið. Þeir nemendur sem eiga árskort í fjallið eru vinsamlegast beðnir um að koma með þau með sér. Nemendur eru nestaðir frá skólanum og eiga ekki að koma með sjoppupeninga.

Fyrir þá sem þurfa að leigja skíði/bretti: Leigan á skíðum og brettum í Hlíðarfjalli er frá 2.100. Frekari upplýsingar um verð er hægt að fá á heimasíðu Hlíðarfjalls.  Síminn í Hlíðarfjalli er 462-2280. Einnig er hægt að leigja skíði og bretti hjá Vidda í Skíðaþjónustunni. 

Foreldrar sjá um að panta skíðabúnað fyrir sitt barn. Best er að ganga frá pöntunum sem fyrst.

Hægt er að panta skíðabúnað á netinu á http://www.hlidarfjall.is/is/skidaleigan

 Ef veður verður leiðinlegt þennan dag og hætt verður við ferðina verður kennt samkvæmt stundatöflu og heimferð á venjulegum tíma.

Klukkan sjö á miðvikudagsmorguninn verður tilkynnt á heimasíðu skólans hvort farið verður í fjallið eða ekki