Skíðadagur í Hlíðarfjalli

Áætlað er að vera með útivistardag vorannar miðvikudaginn 25. mars. Þessi dagur er skipulagður sem langur dagur. Nemendur mæta í skólann á venjulegum tíma og verða í skólanum fram að hádegi. Lagt verður af stað upp í Hlíðarfjall kl. 11.30 og verða nemendur í fjallinu fram að heimferð sem er kl. 15.30. Hægt er að velja um að fara á skíði / bretti / gönguskíði /  eða bara vera á tveimur jafnfljótum. Nemendur sem ætla að vera eftir í fjallinu þurfa að koma með miða um það að heiman.

Foreldrar athugið: Þeir nemendur sem þurfa að leigja sér skíði eða bretti eiga sjálfir að greiða fyrir leiguna, en ekki lyftugjald í fjallið. Þeir sem eiga árskort í fjallið eru vinsamlegast beðnir um að koma með þau með sér. Nemendur eru nestaðir frá skólanum og eiga ekki að koma með sjoppupeninga.

Fyrir þá sem þurfa að leigja skíði/bretti: Það er hægt að leigja skíði og bretti í Hlíðarfjalli. Frekari upplýsingar um verð er hægt að fá á heimasíðu Hlíðarfjalls.  Síminn í Hlíðarfjalli er 462-2280. Einnig er hægt að leigja skíði og bretti hjá Vidda í Skíðaþjónustunni. Síminn þar er 462-1713.

Foreldrar sjá um að panta skíðabúnað fyrir sitt barn.

Best er að ganga frá pöntunum sem fyrst.

 Ef veður verður leiðinlegt þennan dag og hætt verður við ferðina verður kennt samkvæmt stundatöflu og heimferð á venjulegum tíma.

Klukkan sjö á miðvikudagsmorguninn verður tilkynnt á heimasíðu skólans hvort farið verður í fjallið eða ekki