Skólahreysti - annað sæti

Skólahreysti fór fram í gær, miðvikudaginn 17. mars, og fóru 6 keppendur frá okkur og kepptu í áttunda riðli á Akureyri. Það voru þau Karen Rut Brynjarsdóttir, Bjarki Jarl Haraldsson, Kara Hildur Axelsdóttir, Helgi Pétur Davíðsson.  Helgi Pétur keppti fyrir Agnar Pál Þórsson sem meiddist á baki og gat því ekki keppt.
Í okkar riðli voru 7 aðrir skólar frá Norðurlandi auk okkar. Krakkarnir sýndu mikla baráttu og stóðu sig öll mjög vel.  Til dæmis vann Karen Rut hreystigreipina hjá stelpunum en hún hékk í 8:45 mín en hún hékk fimm mínútur lengur en næsti keppandi fyrir neðan. Þelamerkurskóli endaði í öðru sæti eftir Árskóla á Sauðárkróki en það munaði aðeins einu stigi á skólunum. Þetta var ótrúlega flottur árangur hjá nemendum okkar og við erum mjög stolt af þeim.
Langflestir nemendur 8. - 10. bekkjar fóru með á keppnina og hvöttu keppendur okkar til dáða.
 
Hér má sjá úrslit 8 riðils.