Slæm veðurspá

Veðrið gæti truflað skólahald á morgun
Veðrið gæti truflað skólahald á morgun

Á vef veðurstofunnar er stormviðvörun á Norðurlandi fyrir morgundaginn. Þegar þetta er ritað bendir spáin ekki til annars en að fært verði um vegi skólahverfis Þelamerkurskóla í fyrramálið en veður getur svo versnað um hádegið. 

Í kvöld, fimmtudagskvöldið 8. nóvember, meta skólastjórnendur og skólabílstjórar veðurhorfur morgunsins og taka þá ákvörðun um skólahald morgundagsins. Foreldrar eru beðnir um að fylgjast með tilkynningum á heimasíðu skólans í kvöld og fyrramálið.