- Fréttir
- Skólinn
- Nemendur
- Sérstaða
- Þróunarverkefni
- Samstarf
- - Fótur: Tilkynningar
Þelamerkurskóli óskar eftir barngóðri og metnaðarfullri manneskju í 100% starf. Starfið felur í sér að hafa umsjón með og styðja við nemendur í matsal, frímínútum, á göngum, skólalóð og frítímum auk þess að halda skólahúsnæðinu hreinu. Jafnframt getur til fallið önnur gæsla og tilfallandi stuðningur eftir þörfum
Í Þelamerkurskóla eru tæplega 100 nemendur. Skólinn er heilsueflandi skóli og Grænfána skóli. Jafnframt leggur skólinn áherslu á útinám og fjölbreytileika í skólastarfi, nokkuð sem krefst sveigjanleika og þátttöku alls starfsfólks.
Helstu verkefni og ábyrgð
Aðstoða nemendur í leik og starfi og leiðbeina þeim í umgengni og samskiptum.
Stuðla að velferð nemenda í góðu samstarfi við starfsfólk skólans.
Sinna gæslu hvar og hvenær sem þörf er á.
Sjá um dagleg þrif og innkaup á ræstivörum.
Aðstoða í eldhúsi ef þörf er á.
Taka þátt í því uppeldisstarfi sem fram fer innan skólans í anda stefnunnar um jákvæðan aga.
Menntunar- og hæfniskröfur
Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.
Mikil áhersla er á lipurð og færni í samskiptum við börn og fullorðna.
Stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Sveigjanleiki og jákvæðni.
Íslenskukunnátta nauðsynleg.
Við hvetjum öll kyn til að sækja um störf við skólann. Umsóknarfrestur er t.o.m. 31. maí 2024. Ferilskrá og umsókn skal senda á netfang skólastjóra ragnheidurlilja@thelamork.is Laun eru greidd skv. kjarasamningum Einingar/Iðju og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Upplýsingar um Þelamerkurskóla er að finna á heimasíðu skólans, https://www.thelamork.is/ Frekari upplýsingar veitir Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir, skólastjóri, ragnheidurlilja@thelamork.is og í síma 460-1770/866-4085.