Þelamörk glitraði

Nemendur og kennarar Þelamerkurskóla glitruðu í dag með einstökum börnum á degi sjaldgæfra sjúkdóma og heilkenna. Það var gaman að sjá glaðvær og glitrandi börn um alla ganga. Fólk var í glitrandi fötum, með glitrandi hár eða í glitrandi skapi.