- Fréttir
- Skólinn
- Nemendur
- Sérstaða
- Þróunarverkefni
- Samstarf
- - Fótur: Tilkynningar
Þelamerkurskóli óskar eftir að ráða þroskaþjálfa, iðjuþjálfa eða kennara í 70-100% starf í stoðteymi skólans. Ráðið verður í stöðuna til tveggja ára með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Í Þelamerkurskóla er starfað með markvissum hætti í anda skóla fyrir alla og þannig lögð rík áhersla á að búa öllum nemendum aðstæður til náms við hæfi hvers og eins, nokkuð sem krefst sveigjanleika og skapandi hugsunar hjá öllu starfsfólki. Einkunnarorð skólans eru þroski, menntun og samkennd. Í skólanum er starfað eftir hugmyndafræði Jákvæðs aga og Byrjendalæsis. Skólinn er heilsueflandi skóli auk þess sem áhersla er lögð á útikennslu og skapandi starf. Leitað er eftir einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við kennara, foreldra og stjórnendur skólans.
Helstu verkefni
Annast námsaðlögun og stuðning við fjölbreyttan nemendahóp í samvinnu við umsjónarkennara.
Stuðla að velferð nemenda í góðu samstarfi við foreldra/forráðamenn og stoðþjónustu innan skólans sem utan.
Vinna með kennurum að gerð einstaklingsnámskráa og námsumhverfis sem hæfa ólíkum þörfum nemenda.
Vinna að þjálfun í ólíkum færniþáttum út frá þörfum nemenda hverju sinni, í samstarfi við annað starfsfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
Próf og starfsréttindi sem þroskaþjálfi, iðjuþjálfi eða kennari.
Áhugi á skólastarfi og vinnu með börnum og unglingum.
Reynsla af starfi með fjölbreyttum nemendahópi
Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
Áhugi á að ná fram því besta úr hverjum nemanda.
Færni í samvinnu og teymisvinnu.
Frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæð vinnubrögð.
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og framkomu.
Umsóknarfrestur er t.o.m. 18. ágúst 2023. Óskað verður eftir meðmælum. Ferilskrá og umsókn skal senda á netfang skólastjóra ragnheidurlilja@thelamork.is Upplýsingar um Þelamerkurskóla er að finna á heimasíðu skólans, https://www.thelamork.is/ Frekari upplýsingar veitir Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir, skólastjóri, ragnheidurlilja@thelamork.is og í síma 460-1770/866-4085.