Útivistardagur haustannar

Miðvikudaginn 12. nóvember verður útivistardagur í skólanum og farið verður með alla nemendur skólans á skauta í Skautahöllinni á Akureyri. Nemendur mæta á venjulegum tíma í skólann og fá þá morgunmat. Lagt verður af stað frá skólanum klukkan 9.00 og heimferð frá Skautahöllinni ekki seinna en kl. 11.45. Nemendur borða hádegismat í skólanum. Eftir hádegismat eða um kl. 12.30 verður skjávarpabíó í skólanum. Heimferð verður á venjulegum tíma.     Nemendur þurfa ekki að borga sig inn á svellið eða fyrir skautaleiguÞað er kalt inni í Skautahöllinni og því er gott að muna eftir að vera í  hlýjum fötum.  Ætlast  er til að allir nemendur verði með hjálma og eru þeir innifaldir í skautaleigunni. Þeir sem eiga hjálma eru beðnir um að koma með þá.