Útivistardagur í Hlíðarfjalli

Gaman á skíðum
Gaman á skíðum

Fimmtudaginn 17. apríl var farið með alla nemendur skólans á skíði í Hlíðarfjalli. Veðurguðurnir voru okkur hliðhollir þennan dag því veðrið var eins og best verður á kosið og færið mjög gott. Dagurinn var mjög vel heppnaður og allir skemmtu sér vel. Hér má sjá nokkrar myndir sem teknar voru í fjallinu í gær.