- Fréttir
- Skólinn
- Nemendur
- Sérstaða
- Þróunarverkefni
- Samstarf
- - Fótur: Tilkynningar
Nemendur Þelamerkurskóla fóru til Akureyrar síðastliðinn þriðjudag til þess að fá að fara um borð og fá kynningu
á varðskipinu Þór sem er nýjasta varðskip okkar Íslendinga. Smíði varðskipsins Þórs hófst í október
árið 2007 í Asmar skipasmíðastöð sjóhersins í Chile. Verkið gekk mjög vel og var kostnaður innan heildaráætlunar. Vegna
jarðskjálftans í Chile sem varð í febrúar 2010 og flóðbylgjunnar sem reið yfir í kjölfarið varð seinkun á
smíðaferlinu þar sem miklar skemmdir urðu á skipasmíðastöðinni en með einbeittum vilja og samstilltu átaki allra var skipið afhent
þann 23. september 2011. Varðskipið Þór sigldi af stað til Íslands frá Chile 28. september og kom til fyrstu hafnar á Íslandi, Vestmannaeyja
26. október kl. 14:00. Skipið siglir inn í Reykjavíkurhöfn 27. október kl. 14:00.
Varðskipið Þór er tákn um nýja tíma. Varðskipin Ægir og Týr hafa þjónað Íslendingum dyggilega í 40 ár
en með komu Þórs er stigið nýtt skref í öryggismálum sjómanna og vöktun íslenska hafsvæðisins, hvort sem er á
sviði auðlindagæslu, fiskveiðieftirlits, löggæslu, leitar eða björgunar. Varðskipið er sérstaklega hannað með þarfir
Íslendinga og framtíðaráskoranir á Norður Atlantshafi í huga. Skipið verður öflugur hlekkur í keðju björgunaraðila á
Norður Atlantshafi og stóreykur möguleika Landhelgisgæslunnar á hafinu.
Hér (Opnast í nýjum vafraglugga) má sjá myndskeið á íslensku sem Sverrir Sv. Sigurðarson, viðskiptafræðingur hjá Grípandi tók um borð í varðskipinu. (Texti fenginn að láni af heimasíðu Landhelgisgæslunar).
Hér má sjá myndir sem teknar voru af nemendum skólans í ferðinni.
(Texti fenginn að láni af heimasíðu Landhelgisgæslunar)