Verkfall skólabílstjóra

Hafi Starfsgreinasambandið ekki samið við viðsemjendur sína kemur til verkfalls hjá skólabílstjórum dagana 6. og 7. maí n.k.                       

Í Þelamerkurskóla mun verkfallið að þessu sinni aðeins hafa áhrif á akstur skólabíls sem keyrir leiðina Staðartunga - Langahlíð - Skriða - Björg - skóli. 

Eins og staðan er í dag virðist afar líklegt að til verkfallsins komi. Að sjálfsögðu verður skólinn starfandi þessa daga en foreldrar á þessari leið þurfa sjálfir að koma börnum sínum í skólann og sækja þau að honum loknum. Að sjálfsögðu hvetjum við foreldra til þess að hafa samráð og sameinast um akstur eins og hægt er.

Nánar um verkfall SGS