Það er skóli en víða þæfingur

Sennilega er ekki fært fyrir reiðhjólin í dag
Sennilega er ekki fært fyrir reiðhjólin í dag

Eftir veðrið í gær og nótt má búast við því að einhver þæfingur sé á leiðum skólabílanna þess vegna geta foreldrar og nemendur reiknað með því að tímaáætlanir skólabílanna standist ekki fullkomlega nú í morgunsárið. 

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni stendur mokstur yfir á leiðinni til Dalvíkur en vegirnir í dölunum verða mokaðir þegar birtir.