Vinnustöðvun boðuð á morgun

Á morgun miðvikudaginn 21. maí hefur Félag grunnskólakennara boðað vinnustöðvun. Ef af vinnustöðvun verður fellur skólahald niður.

Ef samningar nást milli FG og saminganefndar Sambands ísl. sveitarfélaga og verkstöðvun verður aflýst kemur tilkynning um það á heimasíðu skólans um leið og upplýsingarnar berast skólastjórnendum.

Við biðjum ykkur um að skoða heimasíðu skólans kvöldið fyrir boðaða vinnustöðvun og einnig að morgni vinnustöðvunarinnar. Sömu upplýsingar verða birtar á Facebook síðu skólans og Twitter svæði hans.