Fréttir

Vorhátíð og skólaslit

Sveigjanleiki er dýrmæt dyggð í skólastarfi og þegar veðurguðirnir eru ekki með okkur í liði á vordögum sem byggja mikið á útileik, er gott að vera með starfsfólk sem breytir skipulagi daganna eins og hendi sé veifað. Þannig færðust bæði Þelamerkurleikar og vorhátíð inn í skóla og urðu fyrir vikið ögn öðruvísi en upphaflega var gert ráð fyrir. Það kom þó ekki að sök og við áttum góða daga. Á vorhátíðinni var að venju farið í hinn sívinsæla blindrabolta þar sem nemendur unnu starfsfólkið með einu stigi. Starfsfólkið lét hinsvegar til sín taka í reiptogi þar sem þau rústuðu nemendaliðinu. Í þrautaboðhlaupinu fóru lið nemenda, foreldra og starfsfólks á kostum við mikinn fögnuð viðstaddra. Vorhátíðin endað að venju með pylsugrilli þar sem stjórn foreldrafélagsins stóð vaktina. Skólaslit 1.-6. bekkjar fór fram á Torginu okkar þar sem orðatiltækið Þröngt mega sáttir sitja, átti vel við. 10. bekkingar buðu verðandi fyrstu bekkinga velkomna í skólann og færðu þeim birkiplöntu og buff merkt Þelamerkurskóla. Nemendur voru svo kvaddir inn í sumarfríið og að sjálfsögðu minnt á að vera dugleg að lesa eitthvað skemmtilegt í sumar, auk þess að leika sér úti. Skólaslit 7.-10. bekkinga fóru svo fram við hátíðlega athöfn í Hlíðarbæ síðar um daginn þar sem 10. bekkur var útskrifaður með viðhöfn og aðrir nemendur kvaddir inn í sumarið. Þau Úlfur Sær, Arnsteinn Ýmir, Anna Lovísa og Lára Rún fluttu stórkostleg tónlistaratriði og Sandra Björk flutti kveðju frá útskriftarnemum.
Lesa meira

Þelamerkurleikar

Á næst síðasta degi skólaársins voru haldnir hinir árlegu Þelamerkurleikar, þar sem nemendur spreyta sig á hinum ýmsu þrautum. Í ár var boðið upp á sjö stöðvar víða í skólanum og á skólalóð; tröppuhlaup, pundara, actionary, stígvélakast, limbó, pokavarp og fjölbreyttar þrautir í íþróttasal. Nemendur virtust skemmta sér vel og það vakti mikla lukku að hafa stöðvarnar enn fjölbreyttari en áður.
Lesa meira

Skapandi bílaverkefni í 9.-10. bekk

Á síðustu dögum skólaársins fengu nemendur í 9.-10. bekk það verkefni að hanna bíl úr tilfallandi umbúðum og öðru dóti sem misst hafði notagildi sitt. Í smíðastofunni varð til rampur sem hinir skrautlegustu bílar kepptust svo um að keyra niður á sem mestum hraða.
Lesa meira

Vorferð

Undir lok skólaársins er venja að fara í vorferð með alla nemendur og allt starfsfólk. Í ár var farið í stutta en skemmtilega ferð þar sem við heimsóttum Braggaparkið á Akureyri auk þess sem við fengum að leika okkur á nýrri og stórglæsilegri skólalóð Oddeyrarskóla. Að þessum heimsóknum loknum var svo haldið í Kjarnaskóg þar sem auðvelt er fyrir öll að finna eitthvað við hæfi og þar léku nemendur sér í fjölbreyttum og skapandi leik á milli þess sem þau fengu sér grillaða hamborgara. Skemmtilegur dagur í dýrðlegu veðri.
Lesa meira

Lokahátíð útiskóla

Í síðustu heilu viku skólaársins var haldin lokahátíð útiskólans þar sem allir nemendur skólans nutu samveru í Mörkinni okkar við varðeld og frjálsan leik. Á varðeldinum grilluðu þau snúningsbrauð, banana með súkkulaði og að sjálfsögðu sykurpúða, enda um lokahátíð að ræða.
Lesa meira

Tónskáld í hópi nemenda skólans

Upptakturinn - tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna er verkefni sem hvetur börn og ungmenni til að semja tónverk og senda inn í keppnina. 10 tónverk eru valin til útsetningar af landsfrægu tónlistarfólki. Í kjölfarið eru svo haldnir tónleikar í Hofi þar sem þessi 10 verk eru flutt af atvinnuhljóðfæraleikurum. Anna Lovísa Arnarsdóttir í 10. bekk Þelamerkurskóla var ein þeirra útvöldu en hún samdi tónverkið Eyrun mín sjá liti. Magnað verk hjá Önnu og við óskum henni innilega til hamingju.
Lesa meira

Þelamerkurskóli hlýtur veglegan styrk úr Sprotasjóði

Þelamerkurskóli, í samstarfi við Miðstöð skólaþróunar við HA, hlaut nýverið veglegan styrk til að þróa áfram teymiskennslu við skólann. Styrkurinn er sá hæsti sem úthlutað var í ár og er skólinn afar þakklátur fyrir þennan góða styrk og fullur tilhlökkunar til að þróa áfram árangursríkt verkfæri í skólastarfi. Í Þelamerkurskóla hefur verið unnið markvisst með faglega teymisvinnu undanfarin ár, þar sem megináherslan hefur verið á að skapa traust og virðingu sem grundvöll hreinskiptra samskipta auk vinnubragða sem leggja áherslu á virka þátttöku allra í teyminu. Þá hefur verið lögð rík áhersla á markvissa ígrundun og jafningjastuðning. Næsta skref er að færa samstarfið einnig inn í kennslustofuna í enn virkari teymiskennslu og stefnt er að því að teymiskennsla verði grunneining starfshátta við skólann.
Lesa meira

Forsetakosningar Þeló 2024

Forsetakosningar fóru fram í Þelamerkurskóla miðvikudaginn 29. maí.
Lesa meira

Heimsókn á Ós - Frétt frá nemendum

Þriðjudaginn 28. maí 2024 fóru 3. og 4. bekkur í Þelamerkurskóla í skoðunarferð á Ós.
Lesa meira

Afleysingarstaða umsjónarkennara í 5.-6.bekk laus til umsóknar

Við Þelamerkurskóla eru laus til umsóknar afleysingarstaða umsjónarkennara í 5.-6. bekk, með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Óskað er eftir að ráða skipulagða, sveigjanlega og skapandi grunnskólakennara með mikla hæfni í samskiptum við börn. Umsjónarkennarinn vinnur í teymi með öðrum kennurum. Í skólanum eru um 100 nemendur. Á yngsta stigi verður frá haustinu 2024 einn bekkur í hverjum árgangi og í 5.-10. bekk er samkennsla tveggja árganga.
Lesa meira